25.06.2007 20:14:28 / freyr
Ég hef svoldið mikinn tíma núna í að gera ekki neitt,
sérstaklega á kvöldin. Ég vinn upp í Ufsarveitum og er þar í 10
daga og heima í 4. Á kvöldin er ekkert hér að aðhafast, þess vegna
hefur internet ráf mitt margfaldast síðan ég byrjaði að vinna
hérna.
Ég googlaði nafnið mitt, þegar ég var komin á bls. 22 í
leitarvélinni án þess að hafa fundið sjálfan mig,þá ákvað ég að
breyta titilinum á þessari síðu. En á þessari leit minni uppgötvaði
ég hina frábæru hljómsveit The Freys, en þessi
hljómsveit hefur heldur betur opnað augu mín fyrir Reaggae/Folk
Rock tónlist enda ein sú besta í bransanum.

Þeir vaða í kvenfólki!
Þeir halda einnig upp frábærri myspace síðu myspace.com/thefreys . Þessir
guttar eru bræður sem koma frá norðurströnd Kaliforníu og eru að
gera það mjög gott í "Folk Rock" heiminum þar vestra í dag. Nýjasta
platan þeirra "People are Sacred" hefur verið að gera góða hluti,
en þeir fylgdu henni einmitt eftir með tónleikaferð um vesturströnd
BNA og í Asíu í vetur.

Þrusu gripur sem hefur fengið frábæra dóma og selst eins og
heitar lummur!
Ekki nóg með að Frey bræðurnir spili góða tónlist heldur er
fjölskyldan þeirra einn helsti vínframleiðandinn í Kaliforníu,
www.freywine.com. Frey
fjölskyldan hefur frá því 1980 bruggað afbragðs lífrænt ræktuð vín
sem hlotið hafa margvísleg verðlaun. The Frey fjöskyldan var sú
fyrsta sem byrjaði að brugga lífrænt ræktuð vín í BNA og eru þeir
stærstu í þeim bransa í dag (undarlegt að maður geti ekki fengið
þetta gæðavín í vínbúðum landsins, það sýnir bara hvað vínbúðirnar
á Íslandi eru takmarkaðar).

Eðal lífrænt ræktuð vín frá Frey!
Ég hef pantað kassa af hverri sort frá uppskerunni 2001 sem er
margrómuð um að vera alveg einstaklega góð þar vestra.

The Freys á góðu giggi
Nú hef ég aðeins talað við Daniel Frey, sem er söngvari og
gítarleikari í The Freys, og er uppi hugmyndir um að ég fari til
kaliforníu í haust og skoði víngarðinn og verði hugsanlega
innflutningsaðili fyrir þetta frábæra vín til Íslands. Auk þess mun
ég nýta tækifærið og sjá þá spila og ef mér líst vel á mun ég
flytja þá til landsins og fá þá til í að spila í Höllinni!
Kveðja
»
07.06.2007 21:26:37 / freyr
Jám, þá er aldeilis dejlige utanlandsferð á enda. Farið var í
námsferð með skólanum til Danmerkur, Bornholm og Skánar. Mjög
skemmtileg ferð í alla staði... kannski e-d meira um hana
seinna.
Nú eru allar einkunnir komnar inn fyrir utan eina, sem er
væntanlega á morgun svo ljóst er að BS námi mínu í Jarðfræði er
lokið.
En nú er ég komin á fjöll, við rætur Snæfells í vinnu. Snæfell
er einkar fallegt og tignarlegt fjall sem jaðrar við að vera eins
fallegt og Esjan.
Kveðja
»
25.04.2007 17:22:02 / freyr
Já það er helst að frétta að ennþá eyði ég öllum mínum tíma í
skólanum, sem verður bara skemmtilegra með hverjum deginum.
Ég er búin að losa mig við bílinn sem ég keypti mér fyrir ca. 2
mánuðum, enda enginn ástæð til að eiga bíl þar sem strætókerfi
borgarinnar er gallalaust.
Niðurstaða síðustu könnunar var sú að 64% fannst mottan mín
Fokking töff og sexý en 34 % sögðu e-d annað.
Annars var mottan mín fína var rökuð af mér í svefni af
einhverjum óprúttnum aðila. Nú sef ég með ísexi og slökkvuliðstæki
mér við hlið enda Reykjavík orðinn mjög hættuleg borg.
»
24.03.2007 23:35:24 / freyr
Jæja... nú er langt síðan ég ritaði
hér síðast. Síðan síðast, hef ég farið í skíðaferð til
Ítalíu sem var mjög gott, þar voru drukknir nokkrir “bombardino”
og skíðað af krafti. Á einu “aprés skíinu” átti ég langar
samræður við kvenkynsaðila í hópnum um Rás 2, áhugaverðar
umræður þar.
Annars er ég búin að vera í skólanum
nánast alltaf nema þegar ég sef heima hjá mér, enda mikið að gera
og ritgerðarskrif taka drjúgan toll.
Það ber helst til tíðinda að ég er komin
með myndarlegt yfirvarar skegg sem skáka sáttur af.
Í því tilefni ætla ég að setja könnun
hér til hliðar þar sem menn og konur geta sagt álit sitt á þessari
fallegu mottu og ef viðbrögðin eru góð gæti mottan vel verið komin
til að vera...
»
30.11.2006 19:37:34 / freyr
Það virðist ekki vera nóg að búa á landi þar sem er haust í 10
mánuði á ári og bensínverð er fáránlega hátt, heldur á nú að fara
að hækka verðið á áfengi! það var nottla ekki nógu hátt fyrir.
Þegar ég er búinn í námi ætla ég að flytja í burtu frá þessu landi,
til lands sem hefur árstíðir og sanngjarnt verðlag á matvöru (þar
með talið bjór og léttvín).
»
22.10.2006 22:06:02 / freyr
jájá þannig fór leikurinn í dag. Annars labbaði ég líka upp á
Keili í morgun og var það lítið verk og löðurmanlegt enda tók
gangan á toppinn ekki nema rétt rúmlega 10mín.
Nú er ég ekki búinn að raka mig í að verða 2 vikur held
ég...? ekki vegna þess að ég er e-d að safna heldur vegna
þess að ég hef ekki komið mér í að kaupa mér rakvél í bónus... mér
er farið að klæja.
»
20.10.2006 19:53:35 / freyr
Fór í bað um daginn, það var svo sterk lykt úr klósettilmsvampnum
að mér leið eins og ég væri í baði í risastóru klósetti. Ég
var ekkert sérstaklega að fíla það...
Ég drap í dag, hendur mínar urðu blóðugar
»
13.10.2006 12:39:47 / freyr
Fyrst: ég veit ekki alveg hvaða mongóliti komst inn á stjórnborðið
mitt hérna síðast?
Annað: hvað varðar oktoberfest, þá eru þeir að klúðra hlutunum e-ð
stórkostlega þarna. Það var engin festbjór (það er það sem ég
hef heyrt), ekki hefur verið boðið upp á bretzel og að bjórinn sem
þarna er í boði er Viking lager og Viking lite?!?!? hvað er í
gangi. Af hverju er ekki þýskur bjór í boði? og af hverju
bjóða þeir bara upp á piss (Viking lager og Viking lite). Ég
held ég hætti mér ekkert inn í þetta tjald í kvöld.
»
12.10.2006 12:27:09 / freyr
Ég vera mongo! ég vera borða mongo mango....MONGO
»
07.10.2006 13:45:29 / freyr
jájá
Ég er í náttbuxum og klukkan er að verða 2.... kannski ég horfi á
einn rescue me þátt
Endilega að kvitta
»
05.10.2006 18:53:04 / freyr
Ég sá að það hafa 4 farið inn á síðuna mína dag, en ég er ekki
búinn að skrifa inn á frá því e-rn tíman í sumar. Gott að
skrifa þá e-d
Ég er 81kg og pissaði framan í kött í sumar... honum brá
»
10.07.2006 20:46:48 / freyr
EF einhver getur reddad m'er vinnu eda vill r'ada mig vinnu
'i nokkrar vikur 'i sumar hafi samband i gegnum e-mail
frp1@hi.is eda s'ima 6168898 a laugardag
eftir ad eg er kominn heim. Lika ef einhver vill borga mer
fyrir ad spila golf eda slappa af er thad l'ika asaettanlegt.
»
03.07.2006 19:07:58 / freyr
Thegar vid komum til Cabán var strákur (Carlos) vid rútustödina og
fann hann fyrir okkur B&B stadinn sem vid gistum á hjá "Daddy
Yankí" eda Banana pankake eins og hann var líka kalladur af
heimamönnum. Tharna hittum vid 2 amerískar stelpur (í kring um
28ára gamlar) sem komu thangad líka eftir tilvísun Carlos. Carlos
er strákur sem gaeti verid á aldrinum 19-21árs, og vinnur fyrir
ferdaskrifstofu sem vid fórum svo í ferd til Semuc Champey med. Vid
hittum Carlos oft á thessum 2 dögum sem vid vorum í Cobán. Nú í
gaer komu kanastelpurnar til Flores thar sem vid erum núna frá
Cobán. Thaer höfdu farid út med Carlosi og einhverjum vinum hans á
laugardagskvöld. Thegar thau komu til baka (strákarnir allir
blindfullir) gistu allir strákarnir í dorminu hjá Daddy Yankí thar
sem stelpurnar gistu líka, og einn strákurinn hafdi tekid rúm
annarra kanastelpunar, en hún fékk thad thó ad lokum. 10 mín eftir
ad hún er lögst í rúmid, eru allir adrir sofnadir. Carlos rís á
faetur, enn thá sofaandi, snýr sér ad rúminu og pissar yfir rúmid
og greyid stelpuna! Hún skiptir um rúm og Daddy Yanki snýr dínunnu
vid og býr um rúmid thannig eins og ekkert hafi gerst... í rúminu
sem hún sofnar svo í situr strákur naer dauda en lífi á
rúmbrikinni, thegar hún vaknar örfáum klukkustundum sídar er
strákurinn komin upp í til hennar ad og heldur utanum hana og
mumblar "mamacita" "mamacita" (mamalitla) upp úr svefni. Thegar vid
hittum stelpurnar í gaer daginn eftir var hún farinn ad sofa kl
18.30 eftir svefnlitla nótt ádur.
»
30.06.2006 02:20:20 / freyr
Eftir ad thad var farid illa med okkur í Antigua, fórum vid
nordur til Cobán. Í Antigua er raektad mikid kaffi, thannid
okkur thótti kjörid ad fara í kaffitúr og fundum túr (ekki thannig
sem konur eru á thó) sem hét sip´n´cycle sem venjulegur madur mindi
hald ad thýddi ad vid vaerum ad fara á nokkrar "kaffi fincur" og
hjóla á milli, ogtúrinn kostadi 35 dollara á kjaft og átti ad vera
4 tímar (soldid dýrt kannski en thad er allt svona dýrt í
Antigua). Vid maettum um morguninn hjóludum í 10mín á "fincu"
sáum hvernig kaffid var búid til o.s.frv, smökkudum vonda
uppáhelllingu og svo kostadi 500gr af kaffi 500kr íslenskar sem er
meira en heima. Thegar thessu var lokid, thá var lidin taepur
klukkutími af ferdinni. Thá tók vid 2klst túr um safn um
menningu maya, e-d sem vid bjuggumst ekkert vid og ég fékk mikla
safna threytu. Eftir thetta hjóludum vid heim, og fannst eins
og okkur hafi verid naudgad fast í ósmurt rasgatid! thess má
líka geta ad thad kostadi um 5 dollara inn á safnid thannig ad vid
vorum ad borga 30 dollara fyrir ad hjóla á fincuna sem tók 10 mín
(og vid hjóludum haegt). Vid töludum seinna vid "manegerin"
sem var amerískur strákur sem var med smedjulegt bros allan tíman
og vildi ekkert fyrir okkur gera.
Thannig ef thid farid til Antigua í guatemala ekki fara á Old
Town fitters eins og mig minnir ad ferdaskrifstofan hafi
heitid.
En vid erum nú komin til Cobán sem er nordur fyrir Guatemala
borg, gistum hjá Daddy Yanky eins og hann er kalladur og er gamall
kani sem býr til banana pönnukökur fyrir okkur á morgnanna og allt
gott ad frétta. Forum til Semuc Champey sem var
hrikalega fallegur stadur og svo í helli thar sem ég sá
staerstu kóngúló sem hef séd, fadmurinn á löppunum var ca.
30cm.
Bless
»
26.06.2006 17:39:40 / freyr
Á sídasta fôstudag klifum vid Lóa upp á eldfjallid Volcan San
Pedro, og fórum vid med guide sem var gamall Guatemala madur med
svedju. En Thad er mikid um ad túristar séu raendir á leidinni upp.
Útsýnid af thessu 3020m háu eldfjalli var rosalegt. Lóa stód sig
eins og hetja ad komast upp og komst thrátt fyrir mikinn asma og
litla trú guidsins. Thegar vid komum til baka fórum vid til naesta
baear sem átti ad vera e-d spennanid samkvaemt Lonly-Planet bókinni
okkar, en thar var ekkert svo vid sváfum thar og fórum (med
hardsperrur). Vid komum til Antigua á Laugardag. Antigua er voda
saetur baer umkringdur eldfjollum. Vid fundum ágaetis hótel sem vid
thurftum ad yfirgefa morguninn eftir vegna thess ad Lóa vaknadi vid
rottugang á thakinu og vard hraedd um ad verda bordud. Vid verdum
hér í einhverja daga ad hvíla okkur frá ad Pakka upp og pakka nidur
í bakpoka á hverjum degi. Stefnt er ad labba á eins og eitt
eldfjall og fara í hjólatúr í vikunni. Svo er búid ad skrá mig í
fitubollunámskeid hjá Gauja littla thegar ég kem heim.
»
Síður:
1 2 3